31.8.2009 | 22:51
Húsasmiðjan kallar á lægri leigu - saga eignatengsla
Eik fasteignafélag, sem er m.a. umsvifamikill leigusali í miðborg Reykjavíkur, birti í dag hálfsársuppgjör sitt. Þar segir að Húsasmiðjan, einn stærsti leigutaki félagsins, sem greiddi nærri þriðjung af leigutekjum þess árið 2008, hafi óskað eftir viðræðum um leigulækkun í tengslum við endurfjármögnun félagsins.
Mikil eignatengsl voru á milli Húsasmiðjunnar og Eikar fasteignafélags. Fyrir rúmu ári síðan var eitt "öflugasta fasteignafélags" landsins myndað í flóknum eignatilfærslum undir handleiðslu Glitnis, sem var væntanlega gert til að lækka skuldir Baugs, FL Group og Hannesar Smárasonar. Meirihlutaeigandi Eikar varð Saxbygg, sem nú er gjaldþrota, en Glitnir eignaðist einnig stóran hlut og kom þar með eigendum sínum til bjargar. Eigendur Saxbyggs voru lengi vel m.a. stærstu hluthafa í Húsasmiðjunni. Nú er eignarhald á Eik komið í hendur Íslandsbanka, ef marka má lista yfir stjórnarmenn. Og sumir vilja meina að Saxbygg hafi stýrt Glitni síðustu vikurnar fyrir hrun bankans en ekki Baugur.
Svona er nú litla Ísland.
28.8.2009 | 22:09
Síðustu forvöð?
Ríkisvaldið hefur á undanförnum mánuðum liðkað töluvert fyrir fyrirtækjum með því að gefa þeim greiðslufrest á virðisaukaskatti. Nú sér hins vegar fyrir endann á þeirri aðstoð, einmitt þegar þjóðlíf siglir inn í harðan vetur. Á síðasta greiðsludegi almenns virðisaukaskatts í upphafi ágúst fengu greiðendur tveggja daga frest á greiðslum án þess að lenda í hinu hrikalegi álagi sem hefur sent mörg góð fyrirtækin í þrot. Ráðuneyti fjármála orðaði þetta þannig á sinn skorinorta máta:
"Hefur ráðuneytið í dag [4. ágúst] beint þeim tilmælum til skattstjóra að fellt verði tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti sem á gjalddaga er 5. júní 2009 og gildi sú niðurfelling í fimm daga eða til og með 10. júní 2009. Í sömu tilmælum kemur fram að fellt verði tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti sem á gjalddaga er 5. ágúst 2009 og gildi sú niðurfelling í tvo daga eða til og með 7. ágúst 2009.
Sem áður segir hefur ráðuneytið að undanförnu í þrígang beint samskonar tilmælum til skattstjóra vegna síðustu uppgjörstímabila virðisaukaskatts. Jafnframt voru á Alþingi í vor samþykkt lög sem kveða á um ákveðinn greiðslufrest á aðflutningsgjöldum (þ.m.t. virðisaukaskatts) vegna uppgjörstímabila á árinu 2009. Með tilmælum þeim sem beint var til skattstjóra í dag er horft til næstu tveggja gjalddaga virðisaukaskatts, 5. júní og 5. ágúst, en frá og með 5. október verður álagsbeiting vegna síðbúinna skila á virðisaukaskatti með hefðbundnum hætti."
Ég hef það á tilfinningunni að fyrirtæki þurfi meiri aðstoð á næstu mánuðum til þess að koma sér í gegnum kreppuna.
![]() |
Hvetja til niðurfellingar álags vegna seinkunar á greiðslu virðisauka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.8.2009 | 08:35
Góðar fréttir af Össuri
Tvær góðar fréttir hafa borist úr herbúðum Össurar (þ.e. fyrirtækisins) upp á síðkastið. Annars vegar eru þessar fréttir að Össur hafi óskað eftir skráningu í dönsku kauphöllina í því augnamiði að auka seljanleika bréfanna og styðja við framtíðarvöxt. Þetta er skiljanleg ákvörðun enda eiga danskir fjárfestar um 45% hlutafjár í félaginu, þar af fer William Demant Holding með um 40% hlut. Össur er því nánast hálfdanskt fyrirtæki. Gangi þessi áform eftir yrði Össur aðeins annað íslenska fyrirtækið sem bæri tvíhliða skráningu á hlutabréfamarkaði. Hitt var gamli Kaupþing sem var jafnframt skráður í Stokkhólmi.
Hitt snýr að málefnum íslenska fjárfestingarfélagsins Eyris Invest sem fer með fimmtungshlut í Össuri. Eyrir samdi nýverið við skuldabréfaeigendur um framlengingu og skilmálabreytingu á skuldum sínum fram til ársins 2011. Það hafa verið vangaveltur, m.a. á þessu bloggi, hvort félagið hefði orðið að losa um þennan hlut til þess að fjármagna sig en nú ætti Eyrir að geta stutt dyggilega við Össur ef félagið kýs svo.
Markaðsverðmæti Össurar hefur farið hækkandi á síðustu dögum. Gengi bréfa félagsins er um 24% hærra en það var í byrjun árs og stendur nálægt 52 vikna hámarki.
![]() |
Össur á markað í Kaupmannahöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 08:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.8.2009 | 11:09
Hlutafé Existu þurrkað út
Á aðalfundi Existu í dag liggur fyrir tillaga um að allt hlutafé félagsins verði fært niður, um rúma 13,9 milljarða króna. Þar með hafa allir hluthafar Existu - jafnt háir sem smáir - tapað sínu, þar á meðal þeir sem fengu hlutabréf í Existu í arð frá Kaupþingi árið 2006 og þeir hluthafar sem áttu bréf í Skiptum.
Þótt stjórnendur félagsins ætli sér ekki að leggja fram reikninga fyrir síðasta ár verður kjörin ný stjórn. Ekki liggur fyrir hverjir hafa gefið kost á sér en það kæmi mér verulega á óvart ef Robert nokkur Tchenguiz situr áfram. Alltént bíður nýrra stjórnarmanna ekki öfundsvert verkefni. Framtíðin er óljós þar sem innlendir kröfuhafar (skilanefndir) vilja greinilega ýta út núverandi stjórnendum og koma sjálfum sér að kjötkötlunum. Og þá er almenningsálitið ekki á bandi Bakkabræðra.
Stjórnendur Existu hafa óskað eftir því að reka félagið áfram fyrir hönd kröfuhafa fyrir 800 milljónir króna á ári. Þetta er ansi góð upphæð fyrir fremur einfalt eignarhaldsfélag, jafnvel þótt rekstrarkostnaður Existu yrði bara lítið brot af því sem hann var á árunum 2006-2008. Til samanburðar var rekstrarkostnaður VÍS, sem er að fullu í eigu Existu, 2,4 milljarðar króna á síðasta ári. Hjá VÍS starfa yfir 200 starfsmenn en fáir eru eftir í herbúðum Existu.
Hins vegar hefur verið gaman að fylgjast með umræðunni um málefni Existu á dögunum. Spunakarlar skilanefndanna hafa greinilega verið að hneyklast á rekstrarkostnaði félagsins en ættu að líta í eigin barm. Skilanefndir gömlu bankanna eru að verða eins og ríki í ríkinu - svona rétt eins og Kaupþing, Landsbankinn og Glitnir voru á sínum tíma. Þær eru orðnar eins og meðalstór íslensk fyrirtæki í starfsmannafjöld, þó með gríðarleg völd þar sem vindir og vandamenn sitja í allsnægtum. Er rekstrarkostnaður í skilanefndunum eitthvað frábrugðinn því sem forsvarsmenn Existu og Straums hafa verið að kynna til sögunnar?
![]() |
Exista birtir ekki reikning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.8.2009 | 09:17
Ódýrastur í ríkinu
Á sama tíma og Foster´s skilar auknum hagnaði er Fostersbjórinn sennilega sá ódýrasti í ríkinu. Hálfslítersdósin kostar einungis 220 krónur þrátt fyrir enginn gjaldmiðill hafi styrkst meira gagnvart krónu á árinu en ástralski dalurinn. Eflaust hefur lágt áfengismagn þar eitthvað um að segja. En Foster´s er vel drykkjarhæft öl.
Vinsælustu íslensku tegundirnar, eins og Egils Gull, Viking og Viking Lager, eru talsvert dýrari. Reyndar fannst mér oft einkennilegt hvernig íslensku framleiðendurnir hækkuðu verðskrá sínar til jafns við innflytjendur vegna áhrifa gengislækkunar krónunnar.
En ætli það sé ekki best að hætta hér áður en einhver postulinn kærir mig fyrir áfengisáróður.
![]() |
Hagnaður Fosters eykst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 09:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.8.2009 | 11:19
Danskir skattpeningar í íslenskt hagkerfi?
Ég heyri það út undan mér að mögulega muni Föroya Banki kaupa Sjóvá á næstunni. Þessi stærsti banki Færeyja á og rekur tryggingafélagið Trygd sem vill ná fótfestu á íslenska tryggingamarkaðnum. Færeyingar hafa svo sem sýnt Sjóvá áhuga en fyrr á árinu lýstu innlendir og erlendar fjárfestar yfir áhuga sínum að eignast tryggingafélagið.
Á föstudaginn samþykktu hluthafar í færeyska bankanum að heimila stjórn hans að sækja um fimm milljarða króna víkjandi lán frá danska ríkinu, úr svokölluðum "Bankapakka 2". Fjárhagslegur styrkur bankans er talsverður fyrir framlagið og reyndar var eiginfjárhlutfall A (CAD) 22% í lok júní sem er mun hærri tala en hjá hinum endurreistu íslensku bönkum. Framlagið frá danska ríkinu hefur verið hugsað til að taka yfir önnur fjármálafyrirtæki á góðu verði.
Eigendur Sjóvár eru skilanefnd Glitnis og Íslandsbanki sem dældu samanlagt sextán milljörðum króna inn í félagið með fulltingi ríkissjóðs til að bjarga tryggingarisanum frá óumflýjanlegu þroti fyrr í sumar.
Ef þetta gengur eftir mun sá gamli draumur rætast að erlendir fjárfestar komi að íslenska fjármálakerfinu og það á eigin forsendum. Það skyldi þó ekki að vera eftir allt saman að danskur skattpeningur verði til þess að blása lífí í jökulkalt íslenskt hagkerfi?
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.8.2009 | 15:06
Hagar birtu ekki ársreikning
Hagar eru eitt þeirra fyrirtækja, sem eru með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands, sem kusu að birta ekki ársreikning síðasta rekstrarárs og vísaði félagið þar til afar sérkennilegra undanþáguákvæða 56. gr. laga um verðbréfaviðskipti.
Nú væri ef til vill lag fyrir stjórnendur Haga að draga þennan reikning fram og sýna hvernig efnahagur félagsins leit út í febrúarlok fyrst staða félagsins er svona sterk. Þar með yrði frétt Morgunblaðsins hugsanlega skotin í kaf.
Það að Hagar hafi kosið að birta ekki ársreikning á réttum tíma vekur auðvitað upp spurningar um hvort staðan sé það glæsileg hjá þessu stærsta verslanafyrirtæki landsins.
![]() |
Segja rangt að Hagar séu í gjörgæslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.8.2009 | 10:14
Ríkisflugfélag með útrásarkomplexa
Íslendingar hafa lengi haft ótrúlegan áhuga á flugrekstri og stundum talið sig vera sérfræðinga í öllum slíkum rekstri. Í útrásinni var fjárfest öðru fremur í fjármálafyrirtækjum og flugfélögum oftast með hroðalegum árangri. Sterling, Finnair og AMR eru ljóslifandi dæmi um misheppnaðar fjárfestingar íslenskra kaupahéðna í flugrekstri. Og þó! Mesti hagnaður FL Group kom einmitt í gegnum sölu hlutabréfa í easyJet, næststærsta lággjaldaflugfélagi Evrópu, og Icelandair, fjöreggi þjóðarinnar.
Þessi saga er rifjuð upp nú þegar fréttir berast af því að Travel Service, sem er að helmingi í eigu Icelandair Group, er orðið eitt um hituna við einkavæðingu CSA sem er tékkneskt ríkisflugfélag. Hið stórskulduga íslenska ríkisflugfélag Icelandair er sem sagt að bera víurnar í erlent ríkisflugfélag í gegnum dótturfélag sitt. Sem sagt ríkisflugfélag vill annað ríkisflugfélag.
Væri ekki nær að stjórnendur Icelandair leiti leiða að selja eignir og minnki þannig skuldapakkann, eins og boðað hefur verið, og einbeiti sér að kjarnastarfseminni sem gengur vel? Hreinar vaxtaberandi skuldir Icelandair eru þannig 37 milljarðar króna og eru þungur baggi á félaginu eins og stjórnendur þess viðurkenna í síðasta uppgjöri:"Að mati stjórnenda félagsins er eiginfjárhlutfall félagsins of lágt og greiðslubyrði vaxtaberandi skulda of þung þegar horft er á sjóðstreymi frá rekstri. Eins og áður hefur komið fram hefur um all nokkurt skeið verið unnið að endurskipulagningu efnahagsreiknings félagsins í samstarfi við viðskiptabanka þess. Nýlega var samþykkt á hluthafafundi heimild til stjórnar um að auka hlutafé félagsins um allt að 4 milljarða króna að nafnvirði. Ákvörðun um hlutafjáraukninguna verður tekin samhliða endurskipulagningu á greiðslubyrði vaxtaberandi skulda sem unnin er í samvinnu við viðskiptabanka félagsins."
Efnahagsreikningur félagsins er heldur ekki beint glæsilegur þar sem viðskiptavild vegna skuldsettrar yfirtöku er metin á 30 milljarða króna - klárlega ofmetinn eignarliður.
Það er sem sagt verið að skoða það að viðskiptabankar félagsins, þar sem Íslandsbanki fer fremstur í flokki, skuldbreyti lánum og leggi fram nýtt hlutafé inn í Icelandair. Hvernig væri einfaldlega að selja Travel Service til að grynnka á skuldum? Gleymum ekki að hlutur Icelandair í Travel Service þynntist út fyrir skemmstu þegar félagið sat hjá í hlutafjáraukningu sem segir fátt eitt um fjárhagslegan styrk Icelandair þessi dægrin.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.8.2009 | 09:30
Atvinnusköpun fyrir skoðunarstöðvar
Þetta er eitt af mörgum einkennilegum forgangsatriðum hjá stjórnvöldum; að koma á vanrækslugjöldum hjá eigendum ökutækja sem láta ekki skoða á tilsettum tíma. Nóg hefur kaupmáttur almennings dregist saman sökum skattahækkana, bágborins atvinnuástands og verðbólguáhrifa. Þá hefði maður haldið að ástand íslenska ökutækjaflotans væri gott eftir fjárfestingafyllerí undangenginna ára. Fyrir utan ríkissjóð, og skriffinna þar, hljóta skoðunarstöðvarnar að vera himinlifandi, enda hljóta umsvifin að aukast talsvert. Og hverjir skyldu eiga þær?
Annars virðist þessi innheimtuharka stjórnvalda hafa áhrif því þegar ég mætti með bílinn minn snemma dags á síðasta degi mánaðarins var allt pakkfullt af bifreiðaeigendum í sömu erindagjörðum. Þá hrundi tölvukerfi Frumherja ...
![]() |
164,5 milljónir í sektir vegna óskoðaðra ökutækja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.8.2009 | 12:19
Ólafur hvergi af baki dottinn
Á sama tíma og Ólafur Ólafsson í Samskipum selur hlutabréf sín í Iceland Seafood hefur honum, Lur Berri og öðrum meðfjárfestum tekist að yfirtaka það stóran hlut í Alfesca að aðrir hluthafar munu sæta innlausn. Yfirtakan á Alfesca hefur vakið töluverða athygli þar sem smærri hluthafar - sem eru svo sem ekkert litlir karlar - lýstu yfir mikilli óánægju með það verð sem í boði var. Stjórn Alfesca studdi yfirtökuverð sitt, sem er 4,5 krónur á hlut, með óháðu verðmati frá Saga Capital á Akureyri. Vakti það eftirtekt hversu háa ávöxtunarkröfu Saga gerir við verðmatið. Smærri hluthafar, þar á meðal Gildi lífeyrissjóður og Nýi-Kaupþing, lögðu fram verðmat frá IFS Greiningu í Reykjavík sem hljóðaði upp á átta krónur á hlut. Munurinn á verðmötunum var því 77%!
Alfesca, sem á rætur sínar að rekja til SÍF, er traust og gott fyrirtæki sem hefur siglt ágætlega í gegnum heimskreppuna. Nú siglir gott fyrirtæki, sem hefur reyndar litla tengingu við Ísland, af Íslandsmiðum og sennilega fyrir lítinn pening. Ef til vill ættum við að hafa áhyggjur af því að þau fáu lífvænlegu, alþjóðlegu fyrirtæki sem hér finnast, fari af landi brott.
![]() |
Fara með 91,34% hlut í Alfesca |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt 19.8.2009 kl. 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)