24.9.2009 | 20:35
Síðustu leifar SPRON
Þeir viðskiptavinir SPRON, sem höfðu séreignarsparnað hjá sparisjóðnum eða dótturfélaginu nb.is, hljóta að fagna því að Byr sparisjóður hafi tekið yfir þetta verkefni. Mikil óvissa skapaðist um stöðu sjóðsfélaga eftir að SPRON fór í slitameðferð. Þannig hrundu t.d. vextir á verðtryggðum sparnaði eftir að vaxtatafla SPRON færðist úr Ármúlanum yfir í höfuðstöðvar Kaupþings. Allt í einu voru þeir raunvextir, sem nb.is hafði yfirboðið um nokkur misseri, komnir langt niður fyrir innlánskjör í Byr.
Með þessum flutningi er SPRON, sparisjóður Reykvíkinga, við það að syngja sitt síðasta. Lehman Brothers Íslands verða kannski eftirmæli SPRON, sem stofnaður var af iðnaðarmönnum á öndverðum 4. áratug síðustu aldar og var stolt Reykvíkinga um langt árabil.
![]() |
Séreignasparnaður í SPRON til Byr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2009 | 20:08
Þungur róður framundan
Nýr ritstjóri þarf, eins og forverinn, að glíma við mikinn rekstrarvanda. Nýs ritstjóra bíður vafalaust það vandasama verkefni að ráðast í mikinn og sársaukafullan niðurskurð á starfsliði og útgáfutíðni. Það er engum blöðum um það að fletta að Morgunblaðið tapar milljónum í hverjum mánuði og auglýsingatekjur dragast saman.
Í Mogganum í dag voru aðeins þrjár heilsíðuauglýsingar á 40 síðum eða fjórar að meðtölum bíóauglýsingum. Húsgagnaverslun var á bls. 3 sem jafnan hefur verið dýrasti auglýsingaflöturinn. Í Fréttablaðinu voru 6 heilsíðuauglýsingar (fyrir utan eigin auglýsingar)+6 auglýsingar við hliðana á efnisgálgum+fasteignablað.
![]() |
Ekki búið að ráða nýjan ritstjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2009 | 19:14
Í þá gömlu góðu daga ...
Ég man þegar Úrvalsvísitalan náði 9.000 stiga múrnum um miðjan júlí fyrir rétt rúmum tveimur árum síðan. Þá lá maður í sólbaði á Spánarströndum og evran stóð í 82 krónum.
Ég man líka þegar Icelandair (Flugleiðir) var risi á íslenskum hlutabréfamarkaði. Nú er markaðsverðmæti félagsins aðeins tveir milljarðar, það skuldum vafið og að stærstum hluta í eigu ríkisbankan.
![]() |
Bréf Icelandair lækkuðu um 48% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2009 | 08:53
Óþekkt fyrirbæri á Íslandi
![]() |
Sjö ár fyrir innherjasvik |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.9.2009 | 09:04
Peningastefna upp á punt
Það var síðast í maí árið 2004 sem Seðlabankinn náði verðbólgumarkmiðum sínum. Eitt af grunnmarkmiðum peningamálastefnunnar hefur því ekki náðst í rúm fimm ár og fátt bendir til þess að verðbólga - þótt hún fari lækkandi - verði komin á þann stað sem að er stefnt. Auðvitað sjá það allir að núverandi peningastefna er og hefur verið gagnslaus; knattspyrnuþjálfari fær ekki fimm ár til að ná markmiðum sínum og verðbólgan er enn allt of há.
Í viðtalinu við Morgunblaðið segir Már að vextir hefðu þurft að vera hærri á árunum 2006 og 2007 og skynsamlegt hefði verið að grípa inn í gjaldeyrismarkaðinn. Háir vextir voru auðvitað súrefnið fyrir jöklabréfaútgáfuna og miðað við það hvað gerðist hefði sennilega flæði erlends fjármagns aukist enn frekar með hærri vöxtum.
![]() |
Eftirlit með gjaldeyri hert |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.9.2009 | 18:38
Hvenær sat Margrét í stjórn Kaupþings?
Ég minnist þess ekki að Margrét Kristmannsdóttir hafi nokkurn tíma átt sæti í stjórn Kaupþings eins og haldið er fram í þessari frétt mbl.is (sem verður væntanlega leiðrétt). Athugun FME beinist að því hvort Brynja Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Norvik og fyrrverandi stjórnarmaður í Kaupþingi, sé hæf til setu í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Margrét situr ekki einu sinn í stjórn lífeyrissjóðsins!
Það hlýtur að vera hægt að gera þá kröfu til vefmiðlanna að þeir fari rétt með helstu staðreyndir. Mbl. hefur það þó á hreinu að Margrét fer með formennsku í SVÞ.
Svo er það annað mál hvort fulltrúar verkalýðshreyfinga séu hæfari stjórnarmenn í lífeyrissjóðum en fulltrúar atvinnurekenda. Væri ekki best að sjóðsfélagar kysu sína fulltrúa sjálfir með beinum hætti?
![]() |
FME enn að skoða hæfi stjórnarmanns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.9.2009 | 21:48
Endurtaka Eyrisfeðgar leikinn?
Útnefningar viðskiptablaðanna á viðskiptafrömuðum ársins hafa oftar en ekki vakið hlátur í ljósi sögunnar þannig að blaðamenn og dómnefndir hafa orðið að læðast með veggjum. Björgólfur Thor, Hannes Þór og Jón Ásgeir hafa allir brotlent harkalega og skilið eftir sig sviðna jörð. Hins vegar gæti farið svo að útnefning Viðskiptablaðsins á viðskiptamanni ársins 2008 sé vísbending um það að hinn útnefndi gæti endurtekið leikinn. Viðskiptablaðið tilnefndi nefnilega Árna Odd Þórðarson, forstjóra Eyris Invest sem er kjölfestufjárfestir í Marel og Össuri.
Eyrir bar mun minna tjón af bankahruninu en aðrar viðskiptablokkir á Íslandi þar sem félagið hafði litla stöðu í bankageiranum. Á móti var staða Eyris kannski ekki svo glæsileg þar sem félagið sá fram á þunga endurfjármögnun á árinu 2009. Nú hefur hún verið tryggð með skuldbreytingu og framlengingu skuldabréfaflokks til ársins 2011 og Eyrir Invest græðir á tá og fingri þessa dagana sökum gengishækkana í stoðtækjaframleiðandum Össuri. Þó verður að telja líklegt að Eyrir muni fremur einbeita sér að Marel og Stork en Össuri þegar tímar líða og líklega selja hlut sinn í stoðtækjaframleiðandum.
Frá því að fréttir bárust á vormánuðum um mögulegt yfirtökutilboð í Össur hefur markaðsverðmæti félagsins hækkað um 80%. Ekkert tilboð hefur þó verið lagt fram (kannski sem betur fer fyrir hluthafa) en fyrirtækið er nú komið í dönsku kauphöllina og hefur vakið töluverða athygli í gömlu herraþjóðinni. Talsverðar hækkanir hafa þannig orðið á gengi bréfanna eftir að viðskipti hófust í Kaupmannahöfn. Þetta hefur komið sér vel fyrir Eyrir með sinn fimmtungshlut í Össuri. Stjórnendur félagsins, með Jón Sigurðsson í broddi fylkingar, misstu því miður af allri þessari hækkun því þeir voru neyddir til að selja bréf sín í veðkalli um svipað leyti og orðrómur fór af stað um yfirtöku. Danski fjárfestingarsjóðurinn William Demant hrifsaði til sín bréf stjórneda og keypti þar fimm prósent hlut á tombóluverði. Eyrisfeðgar hafa hins vegar komist klakklaust í gegnum hafrót á fjármálamörkuðum og stefna á viðurkenningar viðskiptablaðanna.
![]() |
Enn hækkar úrvalsvísitalan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2009 | 09:49
Fire sale hjá Fons
DV sagði frá því á dögunum að lögmaður nokkur, Guðjón Ólafur Jónsson, hefði tekið sér um 4% þóknun fyrir það að miðla ríflega 29% hlut þrotabús Fons í sænsku ferðaskrifstofukeðjunni Ticket til nýs eiganda. Samtals nam þóknunin 25 milljónum króna sem hlýtur að teljast verulega há fjárhæð í ljósi þess að umrædd bréf eru ekki í óskráðu félagi heldur í fyrirtæki sem gengur kaupum og sölum á sænska hlutabréfamarkaðnum. Söluþóknun vegna hlutabréfaviðskipta venjulegra kúnna er oft á bilinu 0,8-1,2%. Salan vekur einnig upp spurningar hvort seljandi og tengdir aðilar, þ.e. þrotabúið, bankinn og lögmaðurinn, hafi reynt að fá hámarksverð fyrir bréfin. Það verður að teljast ólíklegt í ljósi þróunarinnar.
Hluturinn, sem var seldur í maí, fór því u.þ.b. 600 milljónir króna til norsku Braathen-fjölskyldunnar sem hefur verið viðloðandi flugrekstur í marga áratugi. Strax á fyrsta degi, sem bréfin voru í eigu Norðmanna, hækkaði gengi Ticket um 8,5% og nú - um fjórum mánuðum síðar - stendur markaðsvirði hlutarins, sem Guðjón seldi fyrir hönd þrotabúsins, í 830 milljónum IKR. Hluturinn hefur því hækkað um 38% að teknu tilliti til gengisbreytinga. Um tíma nálgast virði hlutarins einn milljarð króna.
Það geta svo sem verið ýmsar skýringar fyrir því að Ticket hefur hækkað svo mikið á þessu tímabili. Hlutabréf á erlendum mörkuðum hafa verið á mikilli siglingu og svo er líklegt að eigendaskiptin hafi haft jákvæð áhrif, enda var staða Fons ekki glæsileg. Þá var jafnframt fallið frá hlutafjáraukningu sem hafði verið boðuð. En varla getur þetta skýrt nærri 38% hækkun á tímabilinu? Getur verið að um brunaútsölu hafi verið að ræða á kjölfestuhlut í stærstu ferðaskrifstofukeðju Norðurlanda og að lögmaðurinn hafi kosið að selja í flýti til þess að tryggja sér háa þóknun?
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2009 | 11:43
Verðmætasta fyrirtæki landsins
Össur er stærsta fyrirtæki landsins þegar horft er til markaðsverðmætis, metið á rúma 54 milljarða. Ég efast um að Össur Kristinsson, stofnandi félagsins, hefði trúað því að það ætti eftir að gerast þegar hann vann að skráningu félagsins í kauphöll fyrir rétt röskum áratug. En það gerðist ekki af góðu. Fyrir ári síðan var Kaupþing verðmætasta fyrirtæki landsins, þá metið á um 480 milljarða króna rétt fyrir bankahrun, og Glitnir og Landsbanki hvor um sig metinn á u.þ.b. 200 milljarða króna.
Þótt fagna beri landvinningum Össurar er staðan á íslenska hlutabréfamarkaðnum sorglegri en nokkur orð fá lýst. Alls staðar gegna hlutabréfamarkaðir mikilvægu hlutverki í uppbyggingu atvinnulífs en okkar er í skötulíki. Eftir standa Össur, Marel og e.t.v Föroya Banki sem áhugaverðir fjárfestingakostir. Alfesca og Bakkavör eru bæði á leiðinni út og fátt sem bendir til þess að ný félög komi inn fljótlega.
![]() |
Lítil viðskipti með bréf Össurar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.9.2009 | 21:57
Stærsta erlenda fjárfestingin
Kaup Magma Energy á hlut í HS Orku er án vafa stærsta fjárfesting erlendra fjárfesta á árinu. Lítið hefur farið fyrir því að málið snýst ekki einungis um að kaupa hlut OR heldur einnig að styrkja bágborna fjárhagsstöðu HS, en eigið fé félagsins gufaði nánast upp í gjörningaveðri síðasta árs. Magma hefur í hyggju að leggja fram tvo milljarða króna til að styrkja eiginfjárstöðu HS og koma að fullum krafti inn sem kjölfestufjárfestir. Verður ekki betur séð en að kanadíska fyrirtækið horfi til langs tíma með þessari fjárfestingu - hvað sem síðar á eftir að koma í ljós.
"Þá sé það markmið Magma Energy að styrkja enn frekar fjárhagsstöðu HS Orku í samstarfi við aðra eigendur fyrirtækisins. Þannig hyggist Magma beita sér fyrir því að arður af starfsemi HS Orku næstu árin verði ekki greiddur út, heldur nýttur til fjárfestinga sem styrka fjárhagslega stöðu fyrirtækisins enn frekar."
Það er hins vegar aumt að sjá viðbrögð heilbrigðisráðherra í fréttatímum RÚV, enda svo sem ekki á hverjum degi sem maður sér Ögmund Jónasson verða kjaftstopp. Skautaði hann svo algjörlega fram hjá síðustu spurningu fréttakonunnar um hvernig ríkið hefði átt að kaupa þennan hlut. Ögmundur þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því að 70% kaupverðsins verði greidd með arðinum af HS orku. Eins og staðan er í dag eru engar forsendur fyrir því að taka fé út úr félaginu og sá hagnaður sem kann að skapast verður nýttur til vaxtar.
![]() |
Fjárfest fyrir 17,5 milljarða í HS Orku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)