Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Allt er þá þrennt er

Stuðningsmenn Fram hljóta að fagna því að Sjóvá hefur gerst aðalstyrktaraðili liðsins, enda bíða fyrirtæki ekki eftir því í unnvörpum að styrkja íþróttafélög þessi dægrin. Maður hlýtur hins vegar að velta vöngum yfir tengslum Framara við tryggingafélögin. Á fáum árum hafa öll stóru tryggingafélögin stutt Fram. Fyrst var það VÍS, svo kom TM eftir að framarinn Hannes Smárason í FL Group hóf að styrkja félagið og nú Sjóvá.


mbl.is Tíu Framarar lögðu ÍBV 2:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband