12.1.2010 | 17:08
Vestia færir út kvíarnar
Eftir að Vestia, eignarhaldsfélag Landsbankans, tók yfir Húsasmiðjuna fyrir nokkrum vikum hefur Húsasmiðjan verið í markaðssókn. Það vakti t.d. athygli þegar fyrirtækið auglýsti "tax-free" dag mánuði fyrir jól en mig grunar að forsvarsmönnum BYKO hafi fallið allur ketill í eld þegar á sjálfri messu Þorláks, stærsta verslunardag ársins, var boðið upp á annan "tax-free" dag í Húsasmiðjunni.
Hér er ekki verið halda því fram að eigendur þessarar einnar stærstu verslanakeðju landsins eigi ekki að verja þau verðmæti sem þeir hafa í höndunum; einungis verið að benda á að með aðkomu Vestia var nýtt hlutafé lagt inn í reksturinn, stórsókn hafinn á markaði með verðlækkunum sem hlýtur að hafa bitnað á keppinautunum en tryggði nægt lausafé.
Vestia hefur ekki aðeins leyst Húsasmiðjuna til sín. Plastprent, annað rótgróið fyrirtæki, er nú að stærstum hluta komið í hendur Vestia en það var áður í eigu Pálma í Fons.
Forstjóraskipti í Húsasmiðju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:13 | Facebook
Athugasemdir
"stórsókn hafinn á markaði með verðlækkunum sem hlýtur að hafa bitnað á keppinautunum".
Húsasmiðjan hækkaði allt styrkleikaflokkað timbur ásamt smíðavið um 15% á þorlákssmessu og einnig mótavið og lagnaefni um 7% sama dag. Eftir bankahrun lækkaði Húsasmiðjan hins vegar alla fasta afslætti á reikningsviðskiptum hjá viðskiptavinum um 5%. Er þetta stórsókn með verðlækkunum????????? Ja þá kann ég ekki að reikna.
kv.
Guðm. Sal.
Guðmundur Salómonsson (IP-tala skráð) 12.1.2010 kl. 17:26
Held reyndar að Vestia sé að sýna að þeir séu að gera eitthvað. Í dag réðu þeir enn einn vin sinn til að stjórna fyrirtækinu. Eftir að hafa ráðið fyrrum kollega úr bönkunum í Teymi, Vodafone etc.
Hugmyndin er svo að selja sjálfum sér og vinum sýnum fyrirtækin eftir afskriftir.
Einar Guðjónsson, 12.1.2010 kl. 18:29
Þetta lítur grunsamlega út og skrýtið ef þessir vanhæfur og spilltu viðskiptasóðar í Vestia fá að vaða svona uppi.
Guðmundur Pétursson, 13.1.2010 kl. 00:14
Og allt er þetta í boði Steingríms Joð sem ætlaði sko að taka duglega til hendinni í spillingunni eftir sjallana ...hann bara gleymdi að segja okkur að tiltektin fælist í að efla spillinguna.
corvus corax, 13.1.2010 kl. 08:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.