7.4.2009 | 15:30
CCP nálgast markmið sín
Ég var þess heiðurs aðnjótandi að sitja aðalfund CCP sem haldinn var í dag. Það er óhætt að fullyrða að CCP er eitt flottasta fyrirtæki landsins, eins og ársreikningur síðasta árs ber með sér, og framtíðin björt.
Fjármagnsliðirnir voru fyrirtækinu afar hagstæðir. Á sama og íslensk fyrirtæki fjármögnuðu sig í erlendri mynt þá fór CCP algjörlega öfuga leið og tók lán á íslenskum okurvöxtum. Þegar krónan gaf eftir á síðasta ári myndaðist gengishagnaður í bókum CCP, sem gerir upp í USD, upp á níu milljónir dollara (sem reyndar er óinnleystur).
En vöxtur fyrirtækisins hefur verið lygilegur frá því að bankarnir hrundu. M.a. með samvinnu við Atari í markaðsmálum hefur áskrifendum EVE Online fjölgað um tæpan fimmtung frá áramótum og nálgast nú 300 þúsund áskrifenda múrinn. Er nú stutt í að gamalt markmið stjórnenda CCP náist, þ.e. að áskrifendur EVE online verði fleiri en Íslendingar.
![]() |
CCP græddi fimm milljón dali |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 15:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.4.2009 | 10:44
Krónan veikari en um áramót
Krónan heldur áfram að gefa eftir þrátt fyrir að hert hafi verið á gjaldeyrishöftum. Þetta hlýtur að valda stjórnvöldum áhyggjum en spurningin er hins vegar sú hvort það sé ekki eina lausnin að láta krónuna gossa í eitt skipti og hreinsa krónubréfin út úr kerfinu.
Gengisvísitala krónunnar stendur nú í 218 stigum og er því komin upp fyrir áramótagildi sitt.
![]() |
Japanska jenið styrkist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.4.2009 | 18:34
Ræður fólk við afborganir?
Ég man ekki betur en að Glitnir hafi fyrir nokkrum árum boðið viðskiptavinum sínum að fjármagna íbúðir sínar með óverðtryggðum lánum. Fáir ef nokkrir nýttu sér þennan lánakost. Fasteignaeigendur vildu fremur verðtryggð eða erlend lán, enda afborganir af óverðtryggðum lánum eitthvað sem fáir geta ráðið við miðað við vaxtastig á síðustu árum. Fyrsta vaxtagreiðsla af 18 milljóna króna láni er um 278.000 kr. miðað við 18,5% vexti en lækkar svo eftir því sem gengur á höfuðstólinn.
Svo var það Allianz sem íhugaði að bjóða óverðtryggð fasteignalán en ekkert varð úr því.
En miðað við lækkun verðbólgu og það háa vaxtastig sem við búum við þá er varla hægt að mæla með því setja óverðtryggt lán á húsið sitt.
![]() |
Landsbankinn býður óverðtryggð íbúðalán |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.4.2009 | 21:11
Hagsmunir MP
Margeir Pétursson hefur í gegnum tíðina verið óspar að benda á hættuna við það að taka lán í erlendri mynt og reynst sannspár. Í síðasti þætti Markaðarins mælti hann með því að þeir sem væru með slík lán skuldbreyttu þeim í íslenskar krónur, enda teldi hann að gengi krónunnar væri of hátt skráð. Vöktu þessi orð Margeirs mikla athygli, eins og gefur að skilja, og ekki örgrannt um að margur landinn hafi svitnað hressilega.
Hins vegar tók Margeir það ekki fram að MP Banki, þar sem hann er stærsti hluthafinn, hefur töluverða hagsmuni af því að krónan haldist veik og veikist. Hrein erlend eignastaða MP Banka nam tæpum 5,8 milljörðum króna um síðustu áramót. Til samanburðar var eigið fé bankans um 4,6 milljarðar. Það er því viðbúið að stjórnendur MP hafi einmitt verið þeir sem voru að svitna þegar krónan styrktist um rúm 10% á fyrstu vikum ársins.
Þótt fáir efist um heilindi Margeirs Péturssonar þarf auðvitað að skoða orð hans frá fleiri hliðum en einni.
![]() |
Salan á SPRON komin í uppnám |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.4.2009 | 21:12
Huldufélagið Hesteyri kveður
Margir halda að íslensku huldufélögin hafi bara þrifist í skattaskjólum á borð við Tortola og Lúxembourg. Þetta er fjarri sanni og þarf ekki nema að líta á öll félögin sem endurskoðunarskrifstofurnar hafa stofnað á síðustu árum, t.d. AB, ELL og FS. Eitt mesta huldufélagið í íslensku viðskiptalífi, eftir að Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar (Gift) kom út úr skápnum, er tvímælalaust Eignarhaldsfélagið Hesteyri sem nú hefur verið skipt upp. Að sögn Lögbirtingarblaðsins verður til við skiptingu Hesteyrar Berio ehf. og miðast skiptingin við 1. september á síðasta ári - áður en bankakerfið hrundi. Reynar er uppskipting þessa félags hin furðulegasta þar sem til stóð að skipta því upp árið 2006 á milli eigenda þess sem voru Fiskiðjan Skagfirðingur (Kaupfélag Skagfirðinga), Skinney-Þinganes og Ehf. Samvinnutryggingar.
Þótt sögu Hesteyrar megi rekja til ársins 1989 er það fyrst í einkavæðingu Búnaðarbankans sem félagið leikur stórt hlutverk. Eftir baráttu milli valdablokka Framsóknarflokksins, þar sem Ólafur Ólafsson í Samskipum og Þórólfur kaupfélagsstjóri á Króknum tókust á, fékk Hesteyri um fjórðungshlut í VÍS sem varð stærsta eign þess auk eignarhlutar í Skinney-Þinganesi, fjölskyldufyrirtæki Halldórs Ásgrímssonar. Þannig var krosseignarhald á milli félagsins og hluthafans Skinneyjar. Afar lítið fór hins vegar fyrir þessu félagi í umræðunni og vildu eigendur þess sem minnst um það tala.
VÍS hagnaðist gríðarlega á árunum 2003-2006. Félagið átti m.a. stóran hlut í Kaupþingi og hinum ýmsu hlutafélögum. Fyrirtækið var tekið af markaði af Kaupþingi-Búnaðarbanka, Hesteyri, Ehf. Samvinnutryggingum og Ehf. Andvöku árið 2004. Yfirtökugengið var 49 krónur á hlut sem fljótlega reyndist vera algjört tombóluverð. Exista yfirtók VÍS árið 2006 og fékk Hesteyri hlutabréf í Existu í skiptum sem nam rúmum 5% af heildarhlutafé. Ólíkt Gift, sem jafnframt átti fjórðungshlut í VÍS, var Hesteyri ekki bundið af því að eiga bréfin til langframa og gat því mjatlað út bréfunum. Gift grillaðist á sama tíma, enda hrundi verðmæti Existu þegar Kaupþing féll.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2009 | 09:53
Aðför að blaðamönnum
Ég held að Fjármálaeftirlitið sé komið út á ansi hálan ís með þessum leik og lýsir þetta algjöru þekkingarleysi á störfum fjölmiðla. Stofnunin ætti frekar að einbeita sér að þeim bankamönnum sem eru að leka út þessum gögnum svo þau verði opinber. Hverjir hafa til dæmis fullan aðgang að lánabókum bankanna?
Massíft er verið að leka út upplýsingum, sem tengjast bankahruninu, úr bönkum og opinberum stofnunum, s.s. ráðuneytum, þessa dagana. Og það er svo sem ekkert nýtt þótt vafalaust sé meira um það nú en áður. Sumt af því sem lekur út varðar almannahag eins og þessar birtingar Morgunblaðsins sanna, annað ekki. Af hverju finnst FME ástæða til að grípa til aðgerða nú?
Það er með ólíkindum að FME skuli ætla sér í slag við blaðamenn, sem eru að vinna vinnuna sína með birtingu mikilsverðra upplýsinga, og hlýtur að flokkast sem aðför að blaðamannastéttinni. Enda trúi ég ekki öðru en að tjáningarfrelsið og almannahagsmunir vegi þyngra en þessi lagabókstafur.
![]() |
Brutu þau bankaleynd? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
1.4.2009 | 17:54
Bauninn kaupir, mörlandinn selur
Í útrásinni gleyptu Íslendingar ýmsar af nafntoguðustu eignum Dana. Þar má nefna dýrgripi á borð við Magasin du Nord og Illum Bolighus. Nú þegar eignasafn okkar í Danmörku er að hrunum komið bæta þeir dönsku fjárfestar, sem hér hafa verið, við hlut sinn. Sagt hefur verið frá kaupum fjárfestingarfélagsins William Demant Invest á ríflega 5% hlut í Össuri en í gær flaggaði danski lífeyrissjóðurinn ATP ríflega 5,2% hlut í sama fyrirtæki. Danskir fjárfestar, þ.e. William Demant og ATP, fara því með yfir 45% hlutafjár í Össuri og hafa bætt hlut sinn um rúm 7% á einni viku nú þegar virði hlutabréfa í Össuri er að margra mati á niðursettu verði.
Þessu til viðbótar má benda á að Grundtvig-fjölskyldan á ríflega 10% hlut í Marel.
30.3.2009 | 18:41
Keypti lágt, seldi hátt
Það er varla tilviljun að MP banki skuli vera í aðstöðu til þess að vaxa nú á síðustu og verstu tímum. Bankinn minnkaði áhættu sína í íslenskum hlutabréfum og öðrum eignum fyrir þónokkrum árum, að mig minnir áður en hlutabréfamarkaðurinn náði hæstu hæðum sumarið 2007. Stjórnendur MP tóku að vísu áhættu eins og önnur fjármálafyrirtæki en þeir hegðuðu sér ekki eins og hinir sem skilaði sér margfalt til baka. Það bera kaup bankans á stofnfjárbréfum í Sparisjóði vélstjóra (síðar Byr) glöggt vitni um.
MP hóf að kaupa stofnfjárbréf í sparisjóðnum í árslok 2005 á verði sem margir vildu meina að væri í engu samræmi við raunvirði bréfanna. Sögðu margir stofnfjáreigendur ekki farir sínar sléttar af þeim viðskiptum eftir að MP hafði narrað bréfin af þeim á gengi undir 20 á hlut. Brátt var bankinn kominn með 10% hámarkshlut í sparisjóðnum og gengið stefndi á 200. Í júní 2007, mánuði áður en úrvalsvísitalan fór í hæstu hæðir, birtist frétt í Markaðnum um að MP hefði selt 4,5% hlut í Byr og restin hvarf að mestu leyti úr bókum bankans síðar á árinu. Þetta kallast í heimi viðskipta að kaupa lágt, en selja hátt.
Ætli MP endurtaki leikinn með kaupum á útibúaneti SPRON? Að minnsta kosti ætti kaupverðið að reynast hagstætt.
![]() |
MP banki eignast SPRON |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.3.2009 | 14:13
Víkjandi lán reddaði SPRON
Samkvæmt árshlutareikningi SPRON fyrir fyrsta ársfjórðung 2008, sem kannaður var af KPMG, nam CAD-hlutfall SPRON 14,1%. Stjórnendur SPRON taka það þó ekki fram að rétt fyrir lok fjórðungsins veitti Kaupþing SPRON víkjandi lán að upphæð fimm milljarðar króna til að rífa upp eiginfjárhlutfallið eða til að "renna enn styrkari stoðum undir eiginfjárgrunn félagsins", eins og það var orðað. Ekkert óeðlilegt við þetta þótt lánið lýsi auðvitað hversu erfið staða SPRON var á þessum tíma.
Ef það hefði ekki komið til hefði CAD-hlutfall SPRON líklega farið undir 8% eins og fjármálaráðherra hefur haldið fram og FME orðið að grípa í taumana. Seðlabankastjóri þarf hins vegar að útskýra betur hvað hann á við þegar hann heldur því fram að eigið fé SPRON hafi verið uppurið.
![]() |
Eiginhlutfall SPRON ekki undir 8% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.3.2009 | 18:32