28.5.2009 | 20:04
Villandi viðskiptaumfjöllun
Verður ekki að gera ríkari kröfur til fjölmiðla að þeir fjalli rétt um staðreyndir í stað þess að slá upp fyrirsögnum? Í þessari frétt VÍSIS.IS segir að aðeins 12% hluthafa hafi samþykkt yfirtökutilboð í Alfesca en það er ekki enn búið að senda hluthöfum tilboðið! Fjárfestahópurinn,, sem hyggst taka fyrirtækið yfir, er kominn með allt að 80% hlut í félaginu. Þeir fjárfestar, sem réðu yfir 12%, höfðu fallist að framselja hlutafé sitt áður en tilkynnt var um yfirtökutilboðið. Eigum við ekki að bíða eftir niðurstöðu tilboðsins áður en fyrirsögnunum er slegið upp?
Aðeins 12% hafa samþykkt yfirtökutilboð í Alfesca
Lur Berri Iceland ehf., sem er íslenskt einkahlutafélag í eigu franska félagsins Lur Berri Holding SAS, mun gera hluthöfum Alfesca hf. tilboð um að kaupa hluti þeirra í félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu. Athygli vekur að einungis rúmlega 12% hluthafa hafa samþykkt yfirtökutilboðið.
Ólafur Ólafsson, oft kenndur við Samskip, er stórhluthafi í Alfesca.
Í tilkynningunni kemur fram að ð fyrr í dag hafi Lur Berri Holding SAS, Kjalar Invest B.V., Alta Food Holding B.V., Kaupthing Singer & Friedlander Ltd. og tilteknir stjórnendur Alfesca hf. þar á meðal forstjóri, fjármálastjóri og framkvæmdastjórar tiltekinna dótturfélaga Alfesca hf. gert með sér samninga um stjórn og rekstur Alfesca.
Enginn samstarfsaðilanna hyggst selja hlutabréf
Vegna samninganna er litið svo á að þessir samstarfsaðilar hafi með sér samstarf um stjórnun og rekstur Alfesca. Samstarfsaðilarnir eiga samtals 67,44% af útgefnu hlutafé Alfesca og fara sameiginlega með 67,83% af atkvæðisrétti.
Enginn samstarfsaðilanna hyggst selja hlutabréf sín, í heild eða að hluta, í
tengslum við tilboðið.
12% hafa samþykkt tilboðið
Ennfremur hafa Lur Berri Iceland ehf. borist skuldbindandi yfirlýsingar frá
hluthöfum, sem eiga samtals 699.086.562 hluti í Alfesca, sem samsvarar 11,89% af útgefnu hlutafé Alfesca og 11,96% af atkvæðisrétti, þess efnis að þeir muni
samþykkja tilboðið.
Komi fram samkeppnistilboð þriðja aðila og verði það gert opinbert innan gildistíma yfirtökutilboðsins, kunna kaupin á hlutunum og skuldbindingar hluthafa sem að ofan er lýst að ganga til baka.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2009 | 19:42
Alfesca á útleið
Tilboð fjárfestahópsins undir forystu Lur Berri Holding SAS og Ólafs Ólafssonar í Samskipum er tæplega þriðjungi hærra en síðasta markaðsgengi Alfesca. Hafa ber í huga að viðskipti með hlutabréf í Alfesca eru fátíð og hafi eignarhald verið þröngt fyrir þá er það í dag orðið afar samþjappað þar sem hópurinn ræður beint og óbeint um 80% hlutafjár. Þar af leiðandi myndi maður halda að almennir hluthafar ættu að vera sáttir með yfirtökuverðið. Yfirtökugengið er þó svipað í íslenskum krónum og það var fyrir bankahrun. Verðið bíður hins vegar upp á góð tækifæri fyrir kaupendur þegar horft er fram á veginn, skuldsetning er lítil og stjórnendateymið er öflugt.
Nú lítur út fyrir að enn eitt fyrirtækið yfirgefið Kauphöllina og er orðið fátt um fína drætti þar. En tilboðið kemur varla á óvart því að Alfesca, sem varð til úr SÍF, er að meginstofni franskt matvælafyrirtæki.
![]() |
Yfirtökutilboð í Alfesca |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 19:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2009 | 17:01
Kauphöllin sýnir klærnar
Kauphallarmenn hafa gengið í endurnýjun lífdaga og veifa rauða spjaldinu út um allan bæ. Fyrir hin brotlegu félög hlýtur þetta að vera drakónsk refsing þar sem þau standa öll á heljarþröm fjárhagslega. Ein og hálf milljón króna virkar bara mikið.
Morgunblaðið hefur fjallað töluvert um þá umdeildu ákvörðun útgefenda skuldabréfa að birta ekki opinberlega uppgjör síðasta árs með vísan til undanþáguákvæða í lögum um verðbréfaviðskipti. Önnur fyrirtæki, sem hafa farið sömu leið, eiga yfir höfði sér að fá sekt í hausinn sem áður fyrr hefði numið svo sem eins og einum góðum hádegisverðarfundi hjá stjórninni.
![]() |
Fimm félög áminnt og beitt févíti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.5.2009 | 23:33
Eftirsóttur annars staðar
Ég er ekki viss um að Herði Arnarsyni hefði órað það fyrir, er hann lét af störfum sem forstjóri Marels eftir langt starf, að hann ætti fljótlega eftir að vera kominn á fullt í uppbyggingu íslenska fjármálakerfisins.
Ég verð þó að segja að eigendur Sjóvár, kröfuhafar í Gamla-Glitni, voru öllu skynsamari en stóru stofnfjáreigendurnir í Byr sparisjóði sem höfnuðu A-listanum (naumlega þó) og komu í veg fyrir að Hörður leiddi sparisjóðinn sem stjórnarformaður. Þetta voru m.a. Hannes Smárason, Saxbygg, Karen Millen og skúffufélagið Exeter Holdings.
Ólíkt horfa menn á hagsmuni sína.
![]() |
Hörður nýr forstjóri Sjóvár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2009 | 11:46
Mikil hækkun
bilinu 0,2-0,6%. Það kemur ekki á óvart að innfluttar vörur, eins og
eldsneyti, hafi sett mark sitt á verðbólguna. Það vekur hins vegar
furðu að húsnæðisliðurinn, sem var drifkraftur verðbólgunnar á árunum
2005-2007, er að hækka í fyrsta skipti í 10 mánuði.
![]() |
Verðbólgan mælist 11,6% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.5.2009 | 21:05
Pulp Fiction og Byr
Á þessu bloggi hefur verið greint frá afskiptum FI fjárfestinga, gjaldþrota félags Hannesar Smárasonar, af stjórnarkjöri á aðalfundi BYRS. Ýmislegt skrýtið hefur komið fram á síðustu dögum sem sannar glögglega að stórir stofnfjáreigendur, sem hafa mergsogið sjóði sparisjóðsins í krafti stjórnarsetu sinnar og atkvæðisréttar, létu einskis ófreistað til þess að tryggja það að nýtt fólk kæmist ekki til valda.
Eitt þeirra félaga, sem beitti atkvæðisrétti sínum á aðalfundi Byrs, er hið umdeilda Exeter Holdings sem fékk yfirdráttarlán upp á 1,1 milljarð króna frá Byr til þess að kaupa stofnfjárbréf í sjóðnum, sem MP banki hafði leyst til sín m.a. frá fyrrverandi stjórnarformanni Byrs, Jóni Þorsteini Jónssyni. Það er ljóst að Byr hefur tapað þessum útlánum, enda hafa veðin, sem er 1,8% eignarhlutur í sparisjóðnum, fallið verulega í virði eftir þau áföll sem hafa dunið yfir. Það að félag sem keypti handónýt stofnfjárbréf með fjármögnun frá sparisjóðnum sjálfum, skuli geta beitt sér fyrir áframhaldandi sérhagsmunagæslu er með ólíkindum. Í forsvari fyrir Exeter er Ágúst Sindri Karlsson, fyrrum lögmaður MP banka, sem hefur verið líkt við reddarann Winston Wolf sem Harvey Keitel gerði ódauðlegan í Pulp Fiction.
Í viðtali við VÍSI í mars sagði Ágúst Sindri Karlsson að hann hafi þarna líkt og oft áður verið fenginn til að taka til eftir partýið. Ég er vanur að sjá um skítverkin og taka að mér hluti sem aðrir vilja ekki. Ég hef hins vegar fulla trú á Byr og vill eignast stærri hlut í sjóðnum," segir Ágúst Sindri.
Ef Ágúst Sindri hefur enn þá hug að kaupa meira stofnfé á yfirverði þá er ég boðinn og búinn að aðstoða hann við þá leit. Ég treysti mér þó ekki í það að útvega fjármögnun vegna kaupanna!
![]() |
Velunnarar sparisjóða funda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt 26.5.2009 kl. 11:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2009 | 16:03
Hverjir eiga að kaupa þessi bréf?
Ég velti því fyrir mér hverjir eigi að kaupa þennan hlut Íslandsbanka í Icelandair Group. Íslandsbanki er kominn með 47% hlut en á AMX-fréttaveitunni er fullyrt að óbeinn hlutur bankans sé í raun og veru 80%.
Markaðsvirði Icelandair Group er 4,5 milljarðar króna miðað við það viðskiptagengi sem bankinn tekur bréfin til sín. Til samanburðar er bókfært eigið fé Icelandair tæpir 17 milljarðar króna þannig að ætla mætti að upplausnarvirði félagsins væri langt yfir mati markaðarins. Svo er nú ekki því hafa ber í huga að óefnislegar eignir félagsins eru metnar á 29,2 milljarða króna í lok fyrsta ársfjórðungs. Verður að telja verulegum vafa undirorpið að sú eign standi undir sér.
Ein stærsta óvissan í starfsemi Icelandair lítur að endurfjármögnun á næstu tólf mánuðum en alls falla 22,8 milljarðar króna til greiðslu á tímabilinu. Töluvert verk bíður því Íslandsbanka og stjórnenda Icelandair að endurskipuleggja fjárhag "fjöreggsins" og styrkja hann. Félagið er ansi skuldsett en hreinar vaxtaberandi skuldir námu tæpum 42 milljörðum króna í lok mars. Liggur því beinast við að stærstu kröfuhafar breyti skuldum í hlutafé og rýri þannig enn frekar verðgildi hlutafjár í félaginu sem er 15% af útboðsgenginu.
![]() |
Íslandsbanki með 47% hlut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.5.2009 | 10:18
Hannes Smárason og BYR
Eignarhaldsfélagið FI fjárfestingar ehf. tókst ekki að standa af sér brim og boðaföll á fjármálamörkuðum árið 2007, fremur en önnur stór eignarhaldsfélög. Þetta félag, sem áður kallaðist Fjárfestingarfélagið Prímus, er í eigu Hannesar Smárasonar, fyrrum forstjóra FL Group. Í ársreikningi FI fyrir árið 2007 kemur fram að félagið hafi tapað rúmum 27,2 milljörðum króna og námu skuldir umfram eignir tæpum 3,7 milljörðum króna í lok sama árs. Helsta eign félagsins var 10,9% hlutur í FL Group (Stoðum) sem er verðlaus í dag.
Í áritun endurskoðenda FI, sem dagsett er fáeinum vikum fyrir bankahrunið í fyrrahaust, var gerður fyrirvari um rekstrarhæfi félagsins þar sem eigið fé þess var neikvætt auk þess sem markaðsverð eigna hafði lækkað verulega það sem liðið var af árinu 2008. Vaxtaberandi skuldir félagsins námu 32,3 milljörðum króna í lok árs 2007, þar af voru 18,5 milljarðar í óverðtryggðum íslenskum hávaxtalánum. Samkvæmt ársreikningi féllu um 6,6 millljarðar af langtímaskuldum á gjalddaga í fyrra.
Ástæðan fyrir því að þessi saga er sögð er sú að FI Fjárfestingar, sem var augljóslega gjaldþrota sjoppa í árslok 2007, er skráður stofnfjáreigandi í BYR sparisjóði með 3,1% hlut sem gerir það að 8. stærsta stofnfjáreigandum. Þótt Hannes Smárason hafi ekki mætt í eigin persónu á aðalfund Byrs beitti FI atkvæðisrétti sínum á fundinum en eini stjórnarmaður félagsins er skráður Gunnar Sturluson, lögmaður hja Logos. Það þarf engan sérfræðing til að sjá það út að atkvæði FI féllu B-listanum í skaut, en sá listi var lagður fram með sérstakri blessun fyrrverandi stjórnarformanns Byrs, Jóns Þorsteins Jónssonar. B-listinn náði meirihluta innan stjórnar með 48% atkvæða þrátt fyrir að aðeins 175 stofnfjáreigendur hafi gefið honum atkvæði sín. A-listinn, sem undirritaður sat á, hlaut 46% með stuðningi u.þ.b. 450 stofnfjáreigenda. Þannig má sjá að atkvæði FI réðu úrslitum.
Komið hefur fram í fjölmiðlum að Hannes Smárason vilji leggja sitt af mörkum til uppbyggingarinnar á Íslandi. Það er hins vegar ótrúlegt til þess að vita að lánadrottnar FI fjárfestinga skuli leyfa fyrrum forstjóra FL að beita atkvæðisrétti sínum með þessum hætti til þess að tryggja áframhaldandi sérhagsmunagæslu. Niðurstaðan í stjórnarkjöri Byrs var sú að strengjabrúða gömlu stjórnarinnar hrifsaði til sín völdin, þvert á vilja meirihluta stofnfjáreigenda, og naut til þess stuðnings Hannesar Smárasonar og Magnúsar Ármanns, dyggra viðskiptafélaga Jóns Þorsteins í gegnum tíðina.
![]() |
Athugasemdir við fréttaflutning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2009 | 16:02
Tveir óskyldir hlutir
Mikið hefur verið fjallað um eignarhald á Smáralindinni eftir að ég bloggaði um það í gær að ríkisbankarnir ættu allt hlutafé hennar. Margir hafa hins vegar talið að rekstur Smáralindar valdi því að Saxbygg, sem átti óbeinan hlut í verslanamiðstöðinni, sé farið í þrot. Þessi kenning er algjörlega út í hött þar sem fall Glitnis leiddi til falls Saxbyggs. Raunar er Smáralind vel rekstrarhæft fyrirtæki með réttri fjármagnsskipan. Á síðasta ári nam rekstrarhagnaður hennar fyrir afskriftir (EBITDA) um 700 milljónum króna og var handbært fé frá rekstri um 220 milljónir króna. Tap Smáralindar skýrist af háum fjármagnskostnaði og tveggja milljarða króna lækkun á verðmati fasteignarinnar.
Í þessu sambandi er fróðlegt að bera Smáralind saman við Eik fasteignafélag, sem á einmitt 52% hlut í Smáralind. Þar á bæ færðu menn upp verðmæti fasteigna um rúma 3,5 milljarða króna. Ansi djörf ákvörðun á tíma þar sem fasteignaverð er á hraðri niðurleið sem og leigugjöld. Ef ekki hefði komið til þessarar uppfærslu hefði eigið fé Eikar orðið neikvætt um einn milljarð króna.
Það er brýnt í allri umræðu að menn greini á milli eplis og appelsínu. Fjöldagjaldþrot og miklir fjárhagserfiðleikar íslensku eignarhaldsfélaganna þurfa ekki að hafa nein áhrif á rekstur þeirra rekstrarfyrirtækja sem þau eiga. Halda menn til dæmis að slæm staða Landic Property valdi því að Kringlan sé óstarfhæf?
![]() |
Fall Saxbygg fleytir Smáralind í fang ríkisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2009 | 13:55
Smáralindin í eigu ríkisins
Þá er það formlega ljóst að Smáralindin, stærsta verslanamiðstöð landsins, er alfarið komið í eigu ríkisbankanna. Ég get ekki ímyndað mér að þetta hafi einhver á hrif á verslun í Smáralind. Sannir föðurlandsvinir hljóta nú að leggja leið sína í Kópavoginn.
En það verður fróðlegt að sjá hvaða banki tekur Smáralindina á endanum yfir. Ég tippa á Landsbankann.
![]() |
Saxbygg í gjaldþrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |