30.4.2009 | 15:52
Ólíkt hafast menn að
Á sama tíma og fjölmargir skuldabréfaútgendur í Kauphöll Íslands hlaupa í felur með ársreikninga síðasta árs, og bera fyrir sig einkennileg ákvæði verðbréfaviðskiptalaga, fer smásölurisinn N1 allt aðra leið. Hann ætlar að auka upplýsingagjöf til fjárfesta með því að birta rekstraryfirlit á tveggja mánaða fresti. Fjárfestar í öllum flokkum hljóta að fagna þessari nýbreytni.
Þannig skilaði N1 tæplega hálfum milljarði króna í hagnað fyrir skatt á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 211 milljónum kr.
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 15:56 | Facebook
Athugasemdir
Gott hjá þérl, ég er líka mjög ánægður með N1
Jón Snæbjörnsson, 1.5.2009 kl. 12:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.