Bankastýrur hafa átt undir högg að sækja

Þegar nýir bankastjórar tóku við af þeim gömlu, í kjölfar falls bankanna, var gerður góður rómur að ráðningu Elínar Sigfúsdóttur og Birnu Einarsdóttur. Þær gjörþekktu rekstur sinna banka auk þess sem mörgum þótti kominn tími til að konur risu til slíkra metorða - í karlaveldi bankanna. Elín var reyndar fyrsta konan til að stýra íslenskum viðskiptabanka og var í miklum metum meðal starfsmanna Landsbankans, eða svo hefur mér verið sagt.

En engin(n) veit ævi sína fyrr en öll er. Kastljósið hefur beinst að þeim Elínu og Birnu á meðan Finnur Sveinbjörnsson, fyrrum forstjóri Sparisjóðabankans, hefur siglt lygnan sjó á mínum gamla vinnustað. Elín hefur þurft að horfa upp á furðuleg afskipti Tryggva Jónssonar á sölu þrotafyrirtækja til fyrirtækja tengdum Baugi, gagnrýni á launakjör sín og starfsemi peningamarkaðssjóða og þá hafa spjótin beinst að Birnu vegna hlutabréfakaupa í gamla GLB árið 2007 sem aldrei tóku gildi.

 


mbl.is Elín lætur af störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vondar fréttir fyrir sparisjóði

Þetta eru vondar fréttir fyrir sparisjóðina sem eiga margir hverjir hlutabréf í SP Fjármögnun og sjá líklega fram á mikið tap af eignarhlut sínum. Sparisjóðakerfið á almennt í vök að verjast þessa dagana og kæmi það á óvart ef allir hluthafar SP séu aflögufærir að leggja til nýtt hlutafé. Byr er stærstur þeirra með tæpan þriðjungshlut.

Stærsti hluthafinn er þó Nýi Landsbankinn, í eigu ríkisins, sem heldur utan um 51% hlut. Framtíð SP fjármögnunar veltur því líklega á framlagi frá ríkinu.

 


mbl.is SP vill undanþágu frá reglum um eigið fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Banvæn tengsl við Ísland

Það er ekki einungis á Íslandi sem allt er í káli. Ástandið er orðið afar erfitt á Bretlandseyjum og smásölukeðjur berjast í bökkum. Tengslin við Ísland eru alls ekki að hjálpa til en svo virðist vera að íslenskir bankar hafi verið miklu stórtækari í lánveitingum til breskra smásölukeðja en mann hefði grunað. Við höfum heyrt af vandræðum Mosaic Fashions, sem er að stærstum hluta í eigu Baugs og Kaupþings, sem tengist að hluta til falli Kaupþings en aðrar verslanakeðjur eiga undir högg að sækja eftir að íslenska bankakerfið hrundi. Þannig segir Guardian að smásölukeðjur á borð við Cruise, Montain Warehouse og Jones Bootmaker leiti nú logandi ljósi að nýjum fjárfestum eftir að lánafyrirgreiðsla íslensku bankanna tók að bresta og birgjar fóru að herða á viðskiptakjörum.

http://www.guardian.co.uk/business/2009/jan/09/icelandic-chain-profit-warning


Fagnaðarefni - með fyrirvara

Vaxtalækkun sparisjóðanna er fagnaðarefni en þarf þó ekki að koma á
óvart miðað við þá lækkun sem hefur orðið á ávöxtunarkröfu
ríkisskuldabréfa að undanförnu og með minnkandi verðbólguvæntingum. Það
vekur athygli mína að verðtryggðir innlánsvextir virðast, samkvæmt
fréttinni, lækka meira en útlánsvextir. Eru sparisjóðirnir að auka
vaxtamuninn hjá sér svona á síðustu og verstu tímum?
mbl.is Vaxtalækkun hjá sparisjóðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljós eignarhlutur

Án þess að ég ætli að taka afstöðu með öðrum hvorum málsaðilanum í þessari harðvítugu deilu hluthafa í Tali þá er ekki annað hægt en að taka undir orð Jóhanns Óla Guðmundssonar. Hvernig var Þórdísi J. Sigurðardóttur, stjórnarformanni Tals, ekki kunnugt um eignarhlut Hermanns í Tali? Allir fjölmiðlar landsins greindu frá því í janúar í fyrra að samhliða ráðningu Hermanns í stól forstjóra Hive, sem síðar sameinaðist SKO undir merkjum Tals, hefði hann keypt í félaginu. Kaupin voru á allra vitorði og enginn feluleikur í kringum eignarhaldið eins og tíðkast á mörgum öðrum bæjum.

Hér er frétt Viðskiptablaðsins frá því í janúar 2008: "Hermann Jónasson, sem á undanförnum árum hefur verið framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Landsbankans, hefur keypt hlut í fjarskiptafyrirtækinu HIVE og tekið til starfa sem forstjóri félagsins. Hermann verður annar tveggja eigenda HIVE ásamt Jóhanni Óla Guðmundssyni sem áður átti félagið að fullu."

 


mbl.is Samningur við Vodafone aldrei samþykktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bragð til að auka sölu?

Útsölurnar eru hafnar og var meira en nóg að gera í Smáralindinni í dag, eins og ég komst sjálfur að raun um. Mig grunar að orð framkvæmdastjóra Hagkaupa hafi hreyft mjög mikið við fólki en hann sagði í samtali við DV að hann hefði það á tilfinningunni að verðlag myndi hækka töluvert eftir útsölurnar og því kæmu kaupmenn til með að losa sig við birgðir á gamla genginu. Ég held að svona ummæli valdi "panikki" hjá neytendum sem fari út og birgi sig upp af vörum áður en kjarnorkuvetur ríður yfir. Það er ekki langt síðan að framkvæmdastjóri Bónus, öðru Haga-fyrirtæki, lét það hafa eftir sér að vöruskortur væri framundan. Afleiðingin varð sú að margir birgðu sig upp af dósamat til elífðar, niðursoðnum sveppum og ORA-fiskbúðingi.
mbl.is Margmenni á útsölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tíund skilaði jákvæðri ávöxtun

91 fyrirtæki af þeim 100, sem FTSE 100-hlutabréfavísitalan í Bretlandi samanstendur af, lækkaði í verði á síðasta ári. Af þeim tíu fyrirtækjum sem skiluðu lökustu ávöxtuninni voru fjórir bankar og fjögur námafyrirtæki. Á botninum sátu annars vegar HBOS (-90%) og Royal Bank of Scotland (-87%), en hvor um sig var í miklum viðskiptum við íslenska útrásarvíkinga og íslenska banka.

 

Company
Performance
HBOS -90.4%
Royal Bank of Scotland -87.0%
Kazakhmys -83.0%
Xstrata -82.0%
3i Group -73.7%
London Stock Exchange -73.2%
Lloyds TSB -73.2%
Rio Tinto -72.8%
Barclays -69.6%
Vedanta Resources -67.8%


SS skoði hlutafélagavæðingu

Sláturfélag Suðurlands er öflugt fyrirtæki sem býr við ágætan grunnrekstur eins og kemur fram í tilkynningu frá því og gott sjóðsstreymi. Hækkun erlendra skulda, háir vextir og mikil verðbólga hafa hins vegar leikið félagið grátt. Eiginfjárhlutfall fyrirtækisins hrundi úr 35,6% í ársbyrjun niður í 20% um miðjan júlí en SS tapaði rúmum 470 milljónum króna á fyrri hluta ársins. Eiginfjárhlutfallið er væntanlega orðið enn þá lægra í dag með frekara falli krónu og hærri verðbólgu.

Ég sé varla að hjá því verði komist að auka eigið fé Sláturfélagsins en þá er hætt við því að félagsformið verði SS Þrándur í götu. Þeir sem hafa lagt félaginu fjármagn eru annars vegar eigendur A-stofnsjóðs og hins vegar eigendur B-samvinnuhlutabréfa - bréf sem eru atkvæðislaus. Engin markaður er með síðarnefndu bréfin í Kauphöll og verðmætamyndun því algjörlega óvirk. Væri ekki ráð að breyta félagsformi SS í hlutafélag og slá tvær flugur í einu höggi: Eigendur A- og B-bréfa fengju þannig í hendurnar hlutabréf sem hægt væri að selja eða kaupa á sannvirði. Og svo gæti félagið sótt sér nauðsynlegt fjármagn, t.d. með því að bjóða almenningi (dyggum viðskiptavini) að kaupa ný hlutabréf í rótgrónu íslensku fyrirtæki.

Þeir sem halda að nú sé tími samvinnufélaga runninn upp ættu kannski að hugsa sig tvisvar um. 


mbl.is SS gefur út afkomuviðvörun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Straumur fellur um 75% á þremur vikum

Hlutabréf í Straumi-Burðarási fjárfestingabanka hafa fallið um 75% eftir að viðskipti með bréf fyrirtækisins hófust að nýju fyrir þremur vikum síðan. Nú er svo komið að markaðsverðmæti bankans er komið niður í 18,3 milljarða króna en það var mest 240 milljarðar króna þegar hlutabréfamarkaðurinn fór í hæstu hæðir í júlí í fyrra. Fall Straums skýrist aðallega af óljósri stöðu félagsins þessi dægrin og stöðu aðaleiganda þess, Björgólfs Thors, sem ræður yfir u.þ.b. 35% hlut. SB gekk að vísu frá 133 milljóna evra endurfjármögnun á dögunum sem bætti lausafjárstöðu þess og voru það jákvæð tíðindi. Það væri óskandi að banki sem SB kæmist í gegnum þennan ólgusjó, enda er brýnt að fleiri en ríkið reki banka hérlendis og fleiri komi að því að koma hjólum Íslands af stað á ný. Ég heyri að Straumur hafi við það tómarúm sem myndaðist við fall viðskiptabankanna tekið til sín kúnna frá viðskiptabönkunum og aukið markaðshlutdeild sína á gjaldeyris- og skuldabréfamarkaði. Sannast þar hið fornkveðna að eins dauði er annars brauð.

Fyrir bankahrunið var Straumur á hagstæðum kennitölum borið saman við innlend og/eða erlend fjármálafyrirtæki. Í dag er V/I hlutfall bankans gróflega reiknað komið niður í 0,10 ef miðað er við eigið fé bankans í lok október. Að vísu eru heildareignir hans ofmetnar þar sem ekki hefur verið afskrifuð viðskiptavild vegna samruna Straums og Burðaráss frá árinu 2005.

Straumur er ekkert einn um það að búa við óvissu; önnur fjármálafyrirtæki sem lifðu af hrun bankanna eru flest í sömu stöðu og verða sparisjóðirnir til að mynda að þiggja ríkisaðstoð. Nú hafa þrír stærstu sparisjóðir landsins Byr, SPRON og SpKef ákveðið að kanna samruna og hlýtur það að vera gert að kröfu ríkisins sem væntanlega er orðin ansi stór eigandi með beinum eða óbeinum hætti í sparisjóðunum þremur.


mbl.is Lækkun í kauphöllinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sultur og seyra framundan í breskri verslun

Allt stefnir í að jólaverslunin í Bretlandi verði sú versta í manna minnum og bera smásalar kvíðboga fyrir fyrstu tveimur mánuðum nýja ársins, sem að jafnaði er mjög rólegur sölutími. Skýr merki um slappa jólaverslun sást á fyrstu dögum desembermánaðar þegar þekktar verslanakeðjur á borð við krúndjásnið Marks & Spencer voru farnar að halda útsöludaga. Experian Football, sem mælir traffíkina á helstu verslanagötum Bretlandseyja, áætlar að gestafjöldi í verslunum hafi dregist saman að jafnaði um 4,3% á aðfangadagskvöld samanborið við sama tíma í fyrra. Þetta er að vísu töluvert minni samdráttur en við erum að sjá hérlendis en miðað við það sem maður heyrir virðist sem að jólaverslunin íslenska hafi dregist saman um 15% frá metárinu 2007.

Sérfræðingar hjá Credit Suisse reikna með að innri vöxtur (like-to-like) M&S hafi dregist saman um 10% í fatnaði og búsáhöldum en um 6% í matvöru. Þá gera þeir ráð fyrir að innri sala hafi dregist um 5-8% hjá Debenhams, sem er að stórum hluta í eigu íslenskra fjárfesta, og um 6% hjá Next plc.

Áhrifin verða þau að stórar verslanakeðjur munu þurfa að sækja sér nýtt fjármagn, draga úr arðgreiðslum og loka óarðbærum verslunum sem leiðir til enn frekara atvinnuleysis.

Íslenskir fjárfestar eru áberandi í breskri smásölu og virðast “íslenskar keðjur” hafa átt undir högg að sækja að undanförnu, til dæmis Debenhams - svo ekki sé talað um Woolworths sem er komið á heljarþröm. Á dögunum seldi Baugur Group hlut sinn í Whittard of Chelsea með miklu tapi. Whittard hefur orðið illilega fyrir barðinu á samdrættinum í Bretlandi og var rekstur félagsins komin í greiðslustöðvun áður en Baugur seldi hlut sinn. Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs, gerir þó lítið úr vandræðum Whittard í Fréttablaðinu á aðfangadag og fer með gamalkunnan frasa að salan hafi verið liður í endurskipulagningu á eignasafninu sem felist m.a. í sér að horfa frá smærri verkefnum. Þegar Baugur keypti Whittard fyrir þremur árum á 21 milljón punda var markmiðið að opna 100 nýjar verslanir undir merkjum félagsins. Sú sókn skilaði einungis tapi á endanum.


mbl.is Debenhams með 70% afslátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband