Ódýrastur í ríkinu

Á sama tíma og Foster´s skilar auknum hagnaði er Fostersbjórinn sennilega sá ódýrasti í ríkinu. Hálfslítersdósin kostar einungis 220 krónur þrátt fyrir enginn gjaldmiðill hafi styrkst meira gagnvart krónu á árinu en ástralski dalurinn. Eflaust hefur lágt áfengismagn þar eitthvað um að segja. En Foster´s er vel drykkjarhæft öl. 

Vinsælustu íslensku tegundirnar, eins og Egils Gull, Viking og Viking Lager, eru talsvert dýrari. Reyndar fannst mér oft einkennilegt hvernig íslensku framleiðendurnir hækkuðu verðskrá sínar til jafns við innflytjendur vegna áhrifa gengislækkunar krónunnar.

En ætli það sé ekki best að hætta hér áður en einhver postulinn kærir mig fyrir áfengisáróður. 


mbl.is Hagnaður Fosters eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Björnsson

Ætli aukinn áfengisskattur hafi ekki líka áhrif á íslenska ölið.

Annars er nokkuð merkilegt með hinn ástralska Fosters bjór að hann finnst varla í Ástralíu. Enn merkilegra er þetta fyrir þær sakir að Fosters er líklega þekktasta vörumerki Ástrala á heimsvísu.

Magnús Björnsson, 25.8.2009 kl. 09:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband