18.11.2009 | 15:43
Mikil fækkun útibúa
Mikil hagræðing virðist eiga sér stað á útibúaneti bankanna. Þannig hefur útibúum Kaupþings fækkað um fimm talsins á skömmum tíma en á dögunum voru þrjú útibú á höfuðborgarsvæðinu sameinuð í eitt. Þá hvarf allt útibúanet SPRON á einu bretti þegar sparisjóðurinn fór í gjaldþrot. Á síðasta ári lokuðu tvö bankaútibú í Smáralind og einhver útibúa Landsbankans voru sameinuð.
Það er því miður staðreynd að íslenska bankakerfið er allt of stórt og útibúin of mörg fyrir ekki stærra land. Á meðan lítill vilji er fyrir því að þeir sem nýta sér þjónustu útibúa greiði meira fyrir hana má reikna með áframhaldandi fækkun útibúa. Fækkun útibúa ætti vonandi að skila sér í lægri vaxta- og þjónustugjöldum. Eða hvað?
Kaupþings-útibúum fækkað á landsbyggðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.