27.5.2009 | 23:33
Eftirsóttur annars staðar
Ég er ekki viss um að Herði Arnarsyni hefði órað það fyrir, er hann lét af störfum sem forstjóri Marels eftir langt starf, að hann ætti fljótlega eftir að vera kominn á fullt í uppbyggingu íslenska fjármálakerfisins.
Ég verð þó að segja að eigendur Sjóvár, kröfuhafar í Gamla-Glitni, voru öllu skynsamari en stóru stofnfjáreigendurnir í Byr sparisjóði sem höfnuðu A-listanum (naumlega þó) og komu í veg fyrir að Hörður leiddi sparisjóðinn sem stjórnarformaður. Þetta voru m.a. Hannes Smárason, Saxbygg, Karen Millen og skúffufélagið Exeter Holdings.
Ólíkt horfa menn á hagsmuni sína.
Hörður nýr forstjóri Sjóvár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 23:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.