24.3.2009 | 20:19
Stjórnendur selja á tombóluverði
Það sem fylgir ekki þessari frétt er það gengi sem viðskiptin fóru fram á. Gengið var 88 krónur á hlut sem er töluvert undir síðasta markaðsgengi og langt undir einum dollara á hlut sem hefur verið nefnt sem hugsanlegt yfirtökugengi danska fjárfestingarsjóðsins William Demant og einkaframtakssjóðs í Bretlandi, eins og kom fram í frétt AMX.is í síðustu viku.
Nú hefur skuldafen stjórnenda orðið til þess að þeir verða að selja á verði sem er óneitanlega lágt og spyr maður því hvort eitthvað verði af yfirtöku á einum dal á hlut?
Haraldur Yngvi Pétursson hjá IFS greiningu telur að einn dalur á hlut (u.þ.b. 114 krónur) sé of lágt yfirtökuverð fyrir Össur þegar félagið er borið saman við sambærileg félög. Nær væri að horfa á allt að 1,2 dollara.
Össur er eitt frambærilega fyrirtæki landsins um þessar mundir. Verður "Íslands eina von" selt á brunaútsölu til erlendra fjárfesta?
Stjórnendur Össurar selja hlutabréf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt 25.3.2009 kl. 07:36 | Facebook
Athugasemdir
Það væri hræðilegt að missa Össur úr landi, en ég sé ekki stefna í neitt annað eftir þetta.
Þór (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 20:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.