22.12.2008 | 08:53
Hagar: Dýr var mjólkurdropinn allur
Gangi sú sekt eftir sem Samkeppniseftirlitiđ lagđi á Haga vegna misnotkunar á markađsráđandi stöđu fyrirtćkisins verđur um mikla blóđtöku ađ rćđa fyrir ţessa stćrstu verslanakeđju landsins. Sektin nemur reyndar ađeins 1% af veltu fyrirtćkisins á fyrri hluta reikningsársins (1. mars-31. ágúst) en er samt sem áđur fimmtungur af rekstrarhagnađi fyrir afskriftir (EBITDA) á sama tímabili.
Í annan stađ er ljóst ađ verđstríđiđ reyndist Högum afar dýrkeypt lexía og hefur grunnreksturinn aldrei skilađ sömu tölum og fyrir verđstríđiđ. Forsvarsmenn félagsins hafa beinlínis viđurkennt ţađ. Ţegar fyrirtćkiđ birti ársuppgjör um mitt síđasta ár sagđi Finnur Árnason, forstjóri Haga, ađ afkoma félagsins vćri ekki komin í ţann farveg sem gćti talist ásćttanleg til lengri tíma litiđ, ţrátt fyrir ađ nokkur bati hefđi orđiđ á rekstrinum á milli ára.
Ţađ er forvitnilegt ađ skođa hvernig rekstur ţess hefur veriđ ađ ţróast eftir ađ hinu frćga verđstríđi lauk fyrir ţremur árum sem gekk svo langt út í öfgar ađ mjólkurpotturinn var gefinn. Međalálagning, ein helsta kennitalan sem horft er á í verslanarekstri, var ekki nema 26,8% á fyrri hluta ársins 2005 ţegar áhrifa verđstríđsins gćtti samanboriđ viđ 36,8% áriđ áđur. Hlutfall framlegđar (e. gross margin) af vörusölu, önnur kennitala sem horft er mikiđ á í smásölurekstri, datt niđur í 21,2% úr 26,6% á sama tíma. Báđar kennitölurnar tóku hins vegar stökk upp á viđ á nćstu tveimur árum og fór međalálagning í 34,8% á fyrri hluta reikningsársins 2007-´08 sem var nćr ţví ađ vera áđur en til verđstríđsins kom eins og kemur fram í međfylgandi töflu. Hafa ber í huga ađ Hagar juku umsvif sín verulega í sérvöruverslun á árinu 2006 međ kaupum á ýmsum tískuvöruverslunum í Kringlu og Smáralind, en sérvara skilar mun hćrri framlegđ en matvara. Skiptingin er ţó ekki tiltekin í reikningum félagsins.
Nokkrar kennitölur úr rekstri Haga *
2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | ||||
Međalálagning | 36,2% | 26,8% | 34,0% | 34,8% | 32,9% | |||
Framlegđarhlutfall | 26,6% | 21,2% | 25,4% | 25,8% | 24,7% | |||
* Fyrir tímabilin 1. mars - 31. ágúst | ||||||||
Međalálagning: Vörusala/kostnarverđ seldra vara | ||||||||
Framlegđarhlutfall: Framlegđ/vörusala |
Í reikningum Haga, sem birtir voru í október síđastliđnum, fara helstu kennitölur lćkkandi og fór álagning niđur í 32,9%. Nú skal ósagt látiđ hvort verđstríđ hafi aukist á smásölumarkađi eđa fyrirtćkiđ tekiđ á sig gengisskellinn. Međ ţví ađ skođa helstu kennitölur úr rekstri Haga er ţó óhćtt ađ álykta ađ matvöruhluti Haga er langt frá ţví ađ skila ţeim tölum sem sáust fyrir verđstríđiđ frćga.
Flokkur: Viđskipti og fjármál | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.