Marel leitar til nýs banka

Það er ánægjulegt að nýtt hlutafé hafi runnið ljúflega niður í fjárfesta. Marel veitir ekki af að lækka skuldahalann og styrkja lausafjárstöðuna eftir mikinn ytri vöxt á síðustu árum.

Eitt vekur þó óskipta athygli mína. Það er aðkoma Nýja-Kaupþings, sem fær víst nýtt nafn á næstu dögum, að hlutafjársölunni, enda var samband stærstu hluthafa í Marel og Gamla-Landsbankans það náið að slefið slitnaði varla á milli þeirra. Landsbankinn studdi dyggilega við vöxt Marels og fékk fyrir það vænar fúlgur. Horn, fjárfestingarfélag Nýja-Landsbankans, heldur til að mynda utan um tæpan fimmtungshlut í Marel þegar horft er framhjá aukningunni.


mbl.is Góð þátttaka í hlutafjárútboði Marel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband