Óheppileg tengsl

Tengsl eigenda Logosar lögmannsstofu við Baug Group eru óheppileg í alla staði og hreint furðulegt að skiptastjóri Baugs Group skuli vera tilnefndur úr herbúðum þessarar lögmannsstofu. Á það skal m.a. bent að Gunnar Sturluson, framkvæmdastjóri Logos, var hluthafi í fjárfestingarfélaginu Elliðahamar sem átti hlut í FL Group. Gunnar var jafnframt stjórnarmaður í Oddaflugi, fjárfestingafélagi Hannesar Smárasonar, sem var stærsti hluthafinn í FL Group um langt skeið. Gott ef Gunnar var ekki einhvern tíma fundarstjóri á hluthafafundum FL Group.

Tengsl Baugs og FL Group (Stoða) eru óumdeild, enda réði Baugur þar lögum og lofum. Í árslok 2007 lét Baugur FL Group kaupa fasteignir og hlutabréf í fasteignafélögum fyrir 53,8 milljarða króna í skiptum fyrir ný hlutabréf í FL. Þetta voru viðskipti sem voru tvímælalaust hagstæð fyrir Baug Group á þeim tíma.


mbl.is Baugur tekinn til gjaldþrotaskipta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband