Byssurnar koma víða við

Ég man ekki að nokkur NBA-leikmaður hafi verið settur í ótímabundið keppnisbann. Þetta gæti mögulega þýtt að stigamaskínan Arenas, sem hefur nánast ekkert leikið undanfarin ár, spili lítið það sem eftir ifir keppnistímabilsins.

Framherjinn Kermit Washington var dæmdur í 26 leikja bann fyrir að hafa nærri drepið Rudy Tomjanovich í leik árið 1977 og Latrell Sprewell fékk 68 leiki í bann fyrir að hafa gert góða tilraun til að kyrkja þjálfara sinn á æfingu árið 1997. Sprewell, sem leiddi m.a. Knicks í úrslitin 1999, gerði gott betur og hótaði að snúa til baka inn í salinn með byssu.


mbl.is Stern fékk nóg og setti Arenas í keppnisbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emmcee

Kermit Washington málið var frekar brutal...

http://www.youtube.com/watch?v=jgqUZ1IAA_8

Ekki samt gleyma Ron Artest sem fékk 73 leikja bann (út tímabilið) fyrir þetta:

http://www.youtube.com/watch?v=8qD9edGvksw

Emmcee, 7.1.2010 kl. 11:00

2 Smámynd: Eggert Þór Aðalsteinsson

Já, var búinn að gleyma uppþotunum í Detroit. Artest í slökun, þar til að fjandinn verður laus. Svo rámar mig í að Barkley hafi upp á sitt einsdæmi slegist við allt "Bad boys" lið Detroit hér um árið.

Eggert Þór Aðalsteinsson, 7.1.2010 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband