Þaulsetnir þingmenn

Þingmenn ætla að sitjast sem fastast á Alþingi í hinu Nýja-Íslandi eftir kosningar - hvað sem öðrum finnst. Samkvæmt stjórnmálafræðigúrúinu Einari Mar ætla 70% þingmanna að halda áfram! Það þarf auðvitað ekki að koma á óvart, enda hlýtur eftirspurn eftir fyrrverandi þingmönnum að vera í lágmarki í því atvinnuástandi sem nú ríkir. Hið opinbera er að draga saman seglin á öllum vígstöðvum, til dæmis í utanríkisþjónustunni sem löngum hefur verið griðastaður aflóga stjórnmálamanna. En kannski skapast feitar stöður hjá ríkinu með öllum þeim fjárfestingasjóðum sem ríki og bankakerfið ætla að setja á fót.
mbl.is Þingmenn karpa um fjaðrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Sverrir Þór

Heill og sæll félagi, gaman að sjá að þú ert farinn að blogga. Mikið erum við alltaf samstíga :).

Guðmundur Sverrir Þór, 16.2.2009 kl. 19:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband